Klúbbmeistarar GB 2024 krýndir um helgina

Alls voru 67 keppendur skráðir til leiks í 51. Meistaramót GB 2024. Keppendum var skipt niður í 12 flokka. Leikfyrirkomulagið er höggleikur án forgjafar og keppt er í fjóra daga í flestum flokkum. Flokkar 65+ karla og kvenna keppa þrjá keppnisdaga. Opinn flokkur kvenna spilar tvo daga í punktakeppni ásamt unglingaflokki sem var endurlífgaður eftir margra ára hlé. Þar voru …

Meistaramót GB 2024 – Upplýsingar

Þá hefst 51. Meistaramót Golfklúbbs Borgarness á morgun, miðvikudaginn 3. júlí. Um ræðir fjögurra daga Meistaramót sem endar með lokahófi og verðlaunaafhendingu á Hótel Hamar laugardagskvöldið 6. júlí. Alls eru 67 þátttakendur skráðir til leiks og þeim skipt niður í eftirfarandi flokka: Karlaflokkar Meistaraflokkur 1. fl. 2. fl. 3. fl. 50+ 65+ Kvennaflokkar 1. fl. 2.fl. 50+ 65+ Konu flokkur …

Opna Nettómótið í Borgarnesi – Úrslit

Hið árlega Opna Nettómót fór fram á Hamarsvelli síðastliðinn sunnudag þar sem 135 kylfingar voru skráðir til leiks. Allir keppendur fengu teiggjafir í boði Nettó og dregið var úr nokkrum skorkortum áður en leikur hófst. Einnig var hægt að vinna til nándarverðlauna á öllum par þrjú holum vallarins sem eru fimm talsins og með því að ná lengsta teighöggi bæði …

Opna Golfbúðarmótið í Borgarnesi – Úrslit

Opna Golfbúðarmótið var haldið á Hamarsvelli síðastliðinn sunnudag. Leikfyrirkomulagið var tveggja manna Texas Scramble. Veitt eru verðlaun fyrir efstu sjö sætin og tvö nándarverðlaun á 12. braut og 18. braut. 63 lið voru skráð til leiks. Úrslitin má sjá hér fyrir neðan.   1. sæti: N1 á 61 höggi (Magnús Fjelsted og Andri Daði Aðalsteinsson) 2 x 50.000 kr gjafabréf …

Hjóna & Paramót GB 2024

Þá er Hjóna & Paramóti GB 2024 sem haldið var á Hamarsvelli dagana 21.-22. júní lokið. Þetta tveggja daga mót var fyrst haldið árið 2019 og hefur farið vaxandi í vinsældum síðustu ár og er nú orðið ein stærsta fjáröflun klúbbsins ár hvert. Veitt voru verðlaun fyrir efstu 10 sætin ásamt því að veitt voru verðlaun á öllum par þrjú …