Njóttu þess að spila golf í fremstu röð í Borgarnesi!
Golfklúbbur Borgarness
HAMARSVÖLLUR STAÐARREGLUR 2026
1. Vallarmörk:
Völlurinn afmarkast af girðingu þar sem hún er, annars af hvítum hælum.
2. Staða hluta:
Eftirfarandi hlutir eru óhreyfanlegar hindranir (regla 16.1): Jarðfastir steinar á snöggslegnu
svæði, fjarlægðarhælar, vökvunarkerfi, brautarmerkingar, ruslatunnur, bekkir, auglýsingaskilti og
Kókdósin (gamli súrheysturninn) á 10. braut ásamt steinum og ljóskösturum í kring.
Rauðar og bláar stikur, ásamt litlum skiltum sem vísa á næsta teig, grænum umferðarhælum og
köðlum, eru hreyfanlegar hindranir.
3. Grund í aðgerð
Blómabeð ofan við 12. flöt eru grund í aðgerð og er leikur þar bannaður og eru beðin merkt
með einum bláum hæl með hvítum toppi.
4. Róbótar
a) Bolti á hreyfingu hittir hlut (slátturróbóta) af slysni – Leika þarf boltanum þar sem hann liggur
nema ef boltinn stöðvast á róbótanum, sbr. undantekningu 1 við reglu 11.1b – Bolti stöðvast
á hlut á hreyfingu
b) Ef róbótó skemmir kyrrstæðan bolta í leik gildir regla 4.2.c. – Leikmaður má þá skipta um bolta
ef boltinn er skorinn eða sprunginn
c) Hafi boltinn færst úr stað gildir regla 9.6 og leggja þarf boltann á upphaflegan stað
d)Ef boltinn brotnar við að lenda í róbóta eftir högg gildir regla 4.2.b – Höggið gildir ekki og leika
verður öðrum bolta þaðan sem fyrra högg var slegið
5. Vítasvæði
Vítasvæði vallarins eru merkt með rauðum stikum eða spreyi og skulu lausnir teknar samkvæmt
reglu 17. Sé vítasvæði merkt aðeins öðru megin, merkir það að mörk þess framlengjast
óendanlega.
Svæðið innan rauða vítasvæðisins sem skilgreint er með rauðum hælum með hvítum toppi hægra
megin við 4. braut, vinstra megin við 1. braut og kringum framkvæmdasvæðið hægra megin við 7.
braut og 6. flöt er bannreitur. Þegar bolti er á bannreitnum innan vítasvæðisins má ekki leika
boltanum þar sem hann liggur og taka verður lausn frá truflun vegna bannreitsins samkvæmt
reglu 17.1d.
6. Varabolti vegna bolta innan vítasvæðis á 4. og 7. braut
„Ef leikmaður veit ekki hvort bolti hans er innan vítasvæðis vinstra megin á 4. og 7. braut, má
leikmaðurinn leika varabolta samkvæmt reglu 18.3 sem er breytt þannig:
Við að leika varaboltanum má leikmaðurinn nota fjarlægðarlausn (sjá reglu 17.1d(1)), aftur-
á-línu lausn (sjá reglu 17.1d(2)) eða hliðar lausn (sjá reglu 17.1d(3)).
Eftir að leikmaðurinn hefur leikið varabolta samkvæmt þessari reglu má hann ekki nota aðra
möguleika samkvæmt reglu 17.1 í tengslum við upphaflega boltann. Við að ákvarða
hvenær varaboltinn verður bolti leikmannsins í leik eða hvenær verður eða má hætta leik með
honum eiga ákvæði reglna 18.3c(2) og 18.3c(3) við, nema að:
Þegar upphaflegi boltinn finnst innan vítasvæðis og innan þriggja mínútna leitartímans.
Leikmaðurinn getur valið að:
Halda leik áfram með upphaflega boltanum þar sem hann liggur innan
vítasvæðisins og þá má ekki leika varaboltanum. Öll högg með varaboltanum áður
en leik með honum var hætt (þar á meðal slegin högg og vítahögg sem beinlínis
hlutust af leik hans) gilda ekki, eða
Leika varaboltanum og þá má ekki leika upphaflega boltanum.
Þegar upphaflegi boltinn finnst ekki innan þriggja mínútna leitartímans eða það er
vitað eða nánast öruggt að hann er innan vítasvæðis. Varaboltinn verður bolti
leikmannsins, í leik.
Víti fyrir brot á staðarreglum: Almennt víti (Höggleikur – 2 högg; Holukeppni – holutap)
Tímabundin staðarregla
Færslur á braut:
Þegar bolti liggur innan almenna svæðisins og gras slegið í brautarhæð eða neðar, má taka
vítislausa lausn einu sinni áður en högg er slegið, með því að leggja upphaflega boltann eða annan
bolta innan þessa lausnarsvæðis og leika honum þaðan:
a) Viðmiðunarstaður: Staðurinn þar sem boltinn liggur (sjá reglu 14.1)
b) Stærð lausnarsvæðis: Ein kylfulengd frá viðmiðunarstað.
c) Takmörk á staðsetningu lausnarsvæðis:
a. Það má ekki vera nær holunni en viðmiðunarstaðurinn
b. Það verður að vera á almenna svæðinu.
