Grill + Síðustu golfæfingar fyrir krakka í 1. til 10. bekk á morgun, fimmtudag!

Þá er komið að síðustu golfæfingunum með Lalla þjálfara í sumar sem fara fram á morgun, fimmtudaginn 1. ágúst. Æfingarnar verða allar á sínum hefðbundnum tíma; þau yngstu kl. 15:00, miðhópurinn kl. 16:00 og svo elstu kl. 17:00.

Það verða grillaðar pylsur í boði Golfklúbbsins fyrir krakkana að fá sér á morgun við æfingaskýlið kl. 16:00. Þið megið endilega hjálpa okkur að láta orðið berast.

Hlökkum til að sjá ykkur á morgun!