Vinna stendur yfir á flötum Hamarsvallar

Vinna stendur yfir á flötum Hamarsvallar næstu daga. Í dag, fimmtudaginn 18. júlí, voru fyrstu fjórar flatirnar teknar fyrir ásamt æfingagríninu við Hamarsbæinn. Rest verða teknar eftir helgi. Um ræðir vinnu við sáningu, söndun og völtun á flötunum.

Við vonum að GB-félagar og gestir Hamarsvallar sýni þessari nauðsynlegu vinnu þolinmæði og skilning á meðan hún stendur yfir.