Opna Hótel Hamar – ÚRSLIT

Eitt af vinsælustu Opnu mótum sumarsins, Opna Hótel Hamar, var haldið síðastliðinn sunnudag á Hamarsvelli. Alls voru 140 keppendur skráðir til leiks eða 70 lið. Leikinn var tveggja manna Texas Scramble.

Veitt eru verðlaun fyrir 1. til 15. sæti í punktakeppninni og 1. sæti í höggleik án forgjafar (ekki er hægt að vinna í báðum flokkum). Ofan á það eru veitt verðlaun fyrir 20. sæti, 30. sæti, 40. sæti, 50. sæti og loks er óvæntur glaðningur fyrir neðsta sætið. Þá eru veitt verðlaun fyrir þann sem var næstur holu á öllum par þrjú holum vallarins og fyrir lengsta teighögg bæði karla (teigur 53) og kvenna (teigur 42) á 10. braut.

Keppendur í mótinu hafa fengið tölvupóst frá mótanefnd GB varðandi verðlaun í mótinu.

Sigurvegarar geta nálgast verðlaunin sín á Hótel Hamar alla daga frá kl. 9:00 til 20:00 – við biðjum verðlaunahafa að virða þennan tímaramma til að sækja vinningana sína.

Golfklúbbur Borgarness þakkar keppendum mótsins og styrktaraðila mótsins Hótel Hamar kærlega fyrir samstarfið.