Vinkonumót GB og Golfa.is – ÚRSLIT (og myndir)

Vinkonumót GB og Golfa.is fór fram síðastliðinn föstudag í vægast sagt hressilegu roki. Alls voru 60 vinkonur mættar til leiks eða 30 lið. Leikinn var tveggja manna Texas Scramble og allar vinkonur ræstar á sama tíma. Veitt voru verðlaun fyrir efstu þrjú sætin, nándarverðlaun á öllum par þrjú holum vallarins og loks lengsta drive á 10. braut vallarins.

Að golfi loknu var sameiginlegur kvöldverður á Hótel Hamri ásamt verðlaunaafhendingu.

úrslit mótsins

  1. sæti – Fríða og hún ein
  2. Kendalpíur
  3. Los Rullos

Golfklúbbur Borgarness þakkar styrktaraðila móstins Golfa.is fyrir frábært samstarf. Við sjáumst að ári á Vinkonumóti GB föstudaginn 11. júlí 2025.

Svipmyndir frá Vinkonumóti GB og Golfa.is 2024: