19. júní mót GB – Kvennamót.

Golfklúbbur Borgarness Viðburðir

Mánudaginn 19. júní verður hið árlega kvennamót GB á Hamarsvelli.

Leikin verður punktakeppni og er hámarksforgjöf 36.

Verðlaun sem Snyrtistofa Jennýar gefur verða veitt fyrir 3 fyrstu sætin.

Mótið hefst kl. 17.00 en mæting er 16.30. Reynt verður að ræsa allar konur út á sama tíma,

Mótsgjaldið er kr. 1.500

Að móti loknu er hittingur í skála og borðuð góð Gullashsúpa og brauð. Verð kr. 1.500.-

Skráning er hafin á golf.is

Kvennanefnd GB