Vanur/Óvanur sunnudaginn 21. júní kl. 17:00

Golfklúbbur Borgarness Fréttir

VanurÓvanur

Vanur/Óvanur

Verður haldið sunnudaginn 21. júní 2020 kl. 17:00 að Hamri. Skráning er ekki nauðsynleg en mæting er kl. 16:30 við Hótel Hamar.
Leikið verður 12 holu, 4 manna Texas-Scramble. Fjölmennum og höfum gaman. Veðurspáin er góð fyrir sunnudag.
Forgjöf teymis getur aldrei orðið hærri en lægsta forgjöfin í teyminu.

4 manna Texas Scramble
Þegar 4 manna Texas Scramble er leikið leika fjórir kylfingar saman í liði. Fer leikurinn þannig fram að allir fjórir slá högg af teig, síðan velja þeir þann bolta sem þeim þykir vera í bestu stöðunni og slá allir boltann þaðan. Þeir sem eiga þá bolta sem kylfingunum þykir lakari færa því sinn bolta að bolta félaga síns. Sá sem átti besta boltann slær yfirleitt á undan og hinn á eftir. Eftir þau högg endurtekur ferlið sig allt þangað til boltinn er kominn í holuna.