Fyrsta REDKEN ÍSLAND kvennamótið verður haldið föstudaginn 19. júlí á Hamarsvelli í Borgarnesi.
Fyrirkomulag verður TEXAS Scramble (deilt með 3) Vallarforgjöf teymis getur aldrei orðið hærri en vallarforgjöf þess sem lægri forgjöfina hefur í teyminu.
Ræst út af öllum teigum samtímis kl. 12. Mæting er eigi síðar en kl. 11.30.
Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu 6 sætin (x2), glæsilegir hárvörupakkar frá REDKEN ÍSLAND – HÁR ehf. einnig eru tvö gjafabréf upp á einnar náttar gistingu á Hótel B59 í verðlaun fyrir fyrsta sætið í mótinu. Allir þátttakendur fá teiggjöf frá REDKEN. Þá verður dregið úr skorkortum við verðlaunaafhendingu.
Innifalið í mótsgjaldi kr. 5.500 á mann (kr. 11.000 á teymi) eru veitingar eftir mót, fordrykkur og kjúklingasalat að hætti Hótels Hamars.
Skráning á golf.is eða í síma 437-1663 (8.00-12.00 virka daga). Afskráning í síma 473-1663 (8.00-12.00 virka daga) eða gbgolf@gbgolf.is.
ÁRÍÐANDI: Einhver kengur virðist hafa verið á skráningu í mótið á golf.is Við leyfðum afskráningu á netinu til skamms tíma (ekki lengur). Sumir á þátttakendalistanum í mótinu eru ekki inn í rásttímum en hafa greinilega ekki afskráð sig. Biðjum við keppendur að skoða hvorutveggja og láta okkur vita gbgolf@gbgolf.is ef annmarkar eru á.
Greinilega gengur illa fyrir suma að skrá sig í Redken Ísland mótið þannig að bezt er að senda okkur póst með -HEITI LIÐS-KENNITÖLUM BEGGJA OG NÖFNUM og við skráðum ykkur í mótið.