Opna Örninn golf
Opið golfmót á Hamarsvelli í samstarfi við Örninn golfverslun.
Keppnisfyrirkomulag
Leikfyrirkomulag er Texas scramble.
Hámarksforgjöf: 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Forgjöf lögð saman
og deilt með 3, þó aldrei hærri en sú vallarforgjöf sem forgjafar lægri fær.
Verðlaun
Stórglæsileg verðlaun í boði:
1. sæti, 2×45.000 kr. gjafabréf í örninn golfverslun.
2. sæti, 2×35.000 kr. gjafabréf í örninn golfverslun.
3. sæti, 2×25.000 kr. gjafabréf í örninn golfverslun.
4. sæti, 2×15.000 kr. gjafabréf í örninn golfverslun.
Nándarverðlaun á öllum par 3 holum.
Almennt
Ræst út frá kl. 8:00.
Gætið þess að samherjar séu skráðir saman á rástíma.
Keppnisgjald er 5.000 kr. á liðsmann.
Ath: Leikmenn verða að hafa virka forgjöf til að geta unnið til verðlauna.
Mótanefnd áskilur sér rétt til breytingar.