
Myndina tók Ómar Örn Ragnarsson
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu og tilmæla frá Almannavörnum hefur sú ákvörðun verið tekin að loka Hamarsvelli fyrir öðrum en félagsmönnum Golfklúbbs Borgarness frá hádegi 9. október 2020.
Þeir kylfingar sem eiga bókaða rástíma í dag föstudag geta nýtt sér þá rástíma en lokað hefur verið fyrir bókanir. Einnig hafa allir þeir kylfingar sem áttu rástíma um helgina fengið skilaboð um að þeirra rástímar falli niður.
Einnig viljum við biðla til okkar félagsmanna að bóka sig ekki á rástíma á öðrum golfvöllum í kringum höfuðborgarsvæðið og mun GSÍ óska eftir því við golfklúbba að heimila ekki bókanir kylfinga á vellina. Það eru skýr skilaboð frá Almannavörnum um lokun valla á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni.
Vallarstarfsmennirnir okkar eru þegar farnir að huga að lokun og fara í það að færa völlinn í vetrarbúninginn.
Förum varlega og vinnum saman í að kveða þessa veiru niður.
Þessi lokun gildir frá og með hádegi 9. október 2020.
Með kveðju,
Golfklúbbur Borgarness