Hús og Lóðir ehf. styrkir Golfklúbb Borgarness um eina miljón króna.

Golfklúbbur Borgarness Fréttir, Viðburðir

Golfklúbbur Borgarness og Hús og Lóðir ehf. (Snorri Hjaltason og Brynhildur Sigursteinsdóttir) hafa undirritað styrktarsamning  að upphæð 1.000.000  króna. Styrktarsamningurinn kveður á að upphæðinni  sé varið til uppbyggingar á  barna- og unglingastarfið hjá golfklúbbnum. Golfklúbbur Borgarness hefur á sl. árum tekið myndarlega á barna- og unglingastarfi klúbbsins, sú síðast undir handleiðslu Magnúsar Birgissonar PGA golfkennara. Kemur þessi styrkur til með að vera mikil innspýting í þetta góða starf klúbbsins.

Golfklúbbur Borgarness vill koma á framfæri miklu þakklæti til þeirra hjóna, Snorra og Brynhildar.