Hjóna og parakeppni GB 26-27. júní

Golfklúbbur Borgarness Fréttir, Viðburðir

Til þátttakenda í mótinu

Ágæta fólk.

Við vonum að næsti föstudagur og laugardagur eða Hjóna- og parakeppni GB 2020 takist eins vel og og síðasta sumar. Við munum að sjálfsögðu reyna að gera okkar besta til að svo verði. Við vitum að Hótel Hamar mun gera það í mat og drykk og  ekki síst í gistingu fyrir keppendur.

Við viljum þó benda á að vegna afbókana á Hótel Hamar nokkur herbergi laus þessa daga ef einhverjir vilja fullkomna dæmið. Sendið fyrirspurn til hamar@icehotels.is eða hringið í 433-6600 til að bóka eða bera fram fyrirspurn.

Við bendum einnig á GB býður keppendum í mótinu að leika sér að kostnaðarlausu á morgun, fimmtudag. Besta leiðin til þess er að senda okkur póst á gbgolf@gbgolf.is og við setjum ykkur í þá rástíma sem beðið er um (og eru á lausu) á 0 kr.

Allar óskir um golfbíla fara í gegnum hamar@icehotels.is  sem og sérþarfir í mat og drykk.

Mótsgjald (fyrir hjón) í mótið er kr. 38.000.- Innifalið í því er veglegt lokahóf laugardaginn 27. júní sem og frír golfhringur fimmtudaginn 25. júní.

Við biðjum keppendur að ganga frá þátttökugjaldinu þ.e. 38.000 – 15.000 staðfestinu þ.e. kr. 23.000  fyrir mót. Þeir örfáu sem ekki hafa greitt staðfestinguna, greiða auðvitað kr. 38.000

Bankaupplýsingar:

                                            0186 – 26 –  020038

                                            Kt.: 610979-0179

 Reikningar þeirra er nýta húsbýlastæðin m. rafmagni (við Skála)  verða sendir til viðkomandi í lok móts í ljósi gistinátta.

Hjálagt eru rástímaramminn fyrir fyrsta dag mótsins, föstudag. Einnig keppnisskilmálar.

Frekari upplýsingar um verðlaun í mótinu og nándarverðlaun hvorn dag fyrir sig birtist fyrir keppnisdag.

Rástímar föstudag 26.6

Keppnisskilmálar Hjóna- og paramót GB 2020