Bændaglíma GB 2018 – 22. september

Golfklúbbur Borgarness Fréttir, Viðburðir

Spáin lítur þokkalega vel út nk. laugardag þó  svalt verði, en það er svo sem ekki á vísan að róa. Við ætlum að halda Bændaglímu GB og þar með lokamót sumarsins. Gestir félaga er velkomnir að taka þátt (láta Bob  vita til að skrá utanfélaga í gbgolf@gbgolf.is/bob@gbgolf.is).

Mæting er kl. 12.15. Mótið sjálft hefst kl. 13.00 eða þar um bil þegar dregið hefur verið í dilka af bændahöfðingjunum. Þeir etja síðan sínu fólki að vild.

Verðlaun í GB mótaröðinni verða einnig afhent í lok Bændaglímunnar. Óvæntar uppákomur mögulegar.

Ræst verður út af öllum teigum.

Mótsgjald er kr. 1.500 

Skráning á golf.is/gb (mót) og gbgolf@gbgolf.is

Mótanefnd GB