Allir í golf í Borgarbyggð.
Næstkomandi laugardag þann 27. júlí ætlum við að bjóða upp á kynningu á golfi á Gullhamri (stuttvellinum) og Slaghamri (æfingarsvæðinu) milli klukkan 10.00 og 12.00. Að kynningu lokinni verður boðið í pylsupartý (kl. 12.00).
Allir eru velkomnir, ungir sem aldnir.
Gullhamar, 8 holu stutt völlur leikinn.
Slaghamar, æfingasvæði, leiðbeiningar og æfingar.
Kennarar og aðstoðarfólk á staðnum.
Unglinganefnd GB og Magnús Birgisson PGA kennari.
Golfklúbbur Borgarness – Hamri