Vetrarstarf barna og unglinga hjá Golfklúbbi Borgarness hófst 16 janúar í inniaðstöðu okkar Eyjan (í Brákarey). Æfingar eru alla mánudaga kl 17.00 til 18.30 og föstudaga kl 14.30 til 15.30 Jóhannes Ármannsson mun sjá um þjálfun. Kvennanefnd GB hefur ákveðið æfingatíma kvenna á miðvikudögum kl. 17.00-18.30 Almennir tímar GB eru sunnudaga kl. 13.00-15.00. Stundum verður stillt upp mótum og keppnum. …
Sunnudaginn 15. janúar höldum við púttmót í Eyjunni.
Mótið hefst kl. 13.00. Leiknir verða 4 hringir. Tveir almennir pútthringir og tveir einpúttshringir. Betri almenni og betri einpúttshringur telja til skors. Vegleg verðlaun. Mótagjald kr. 1.000.- Mótanefnd GB
Ný heimasíða GB
Vertu velkomin á nýja vefsíðu Golfklúbb Borgarness, Síðan var unnin í WordPress af Tækniborg ehf.